Skólinn Nemendur Foreldrar Námsver Nám og kennsla Tenglar Gallerý Álft

Forsíða

 

 

Rauði Krossinn - kynning og nemendavinna

Aðstoð við flóttamenn

Börn og stríð

Hungur og fátækt

Ísland - aðstoð við stríðshrjáða flóttamenn

Flóttamenn

Mansal í þróunarlöndum

Mansal

 

Rauði kross Íslands - mannúðarmál
Undanfarið hafa nemendur í lífsleikni í 10. bekk fræðst um Rauða kross Íslands. Í byrjun var almenn kynning á hreyfingunni, markmiðum með skólafræðslu RKÍ og bekkirnir sáu mynd sem heita “Æska í skugga ofbeldis” en þar var verið að fjalla um börn í stríði. Einnig fengu allir ýmis gögn frá RKÍ. Með skólafræðslunni stefnir RKÍ að því að nemendur séu sér meðvitaðir um þann mun sem er á aðstæðum fólks, bæði á Íslandi og um allan heim. Einnig að þeir kynnist alþjóðlegri mannúðarstarfsemi og samhjálp. Nemendur fræddust um starfsemi RKÍ hér á landi og erlendis. Krakkarnir voru hvattir til að kynna sér unglingastarf á vegum RKÍ og þeim uppálagt að fara inn á heimasíðu hreyfingarinnar www.redcross.is.
Nemendur fræddust um hugsjónir Rauða krossins: mannúð, fordómaleysi, hlutleysi, sjálfstæði og sjálfboðastarf. Eftir þessa almennu kynningu byrjaði hópvinna. Nemendur skiptu sér í hópa og drógu verkefni sem öll tengdust á einn eða annan hátt mannúðarstarfi RKÍ. Þar má nefna verkefni um flóttafólk, börn og stríð, mansal, hungur og fátækt, náttúruhamfarir o.fl. Í lífsleiknitíma kynntu hóparnir vinnu sína s.s. veggspjöld, glærur, kynningar á tölvutæku formi og sumir hópar dreifðu upplýsingum til nemenda. Einnig stóð söfnunarbaukur frá RKÍ í matsal nemenda í nokkra daga og einn hópurinn sýndi nemendum myndir frá RKÍ við lagið “When I Think of Angels” eftir KK og sungið af Ellen Kristjánsdóttur. Verkefnin voru metin út frá jafningjamati en þá metur hver og einn nemandi vinnu félaganna. Vonandi lærðu nemendur ýmislegt um Rauða kross hreyfinguna, starfið á Íslandi og út um allan heim. Það var gaman að fá að fylgjast með kynningum nemenda og sjá hve jafningjamat þeirra var sanngjarnt.

Fanný Gunnarsdóttir
-námsráðgjafi og lífsleiknikennari

Eldri verkefni

Náttúruhamfarir

Konur og stríð

Mannréttindi

Hit Counter

  Síðan var uppfærð 10.04.2008